
Nú þegar eknir hafa verið 112 kílómetrar á sérleiðum skilur einungis ein sekúnda þá Gunnar Karl og Guðna Frey í sundur þar sem Gunnar Karl leiðir ásamt Magnúsi og Guðni Freyr ásamt Einari er í öðru sæti í Nýliðaflokki. Harðari verður rallýkeppni ekki. Ekið verður eum Kvartmílubrautina á eftir og motorsport.is fylgist með.

Óneitanlega minnir þessi barátta ögn á svipaða baráttu í fyrra þar sem tvær áhafnir skiptust á forustu í Nýliðaflokki alla keppnina. Þá gerði hvorug áhöfnin mistök, hvað gerist nú? Guðni Freyr velti bíl sínum í einmitt þeirri keppni og Gunnar Karl velti sínum bíl fyrr í sumar. Hvað gerist á morgun???
Stöðuna í rallinu má sjá á … http://mmi.is/rallytimes/?RRComp=50&RRAction=9