Fregnir herma að Baldur og Hanna séu úr leik í RallýReykjavík 2016. Í morgun gaf túrbína sig og eftir hádegi fór heddpakkning. Línur eru að skýrast, ekki bara í þessari keppni heldur lítur út fyrir að Sigurður Bragi og Aðalsteinn þurfi einungis að klára til að hampa Íslandsmeistatitli.

Uppfært… Status sem Hanna Rún skrifaði á facebook fyrir nokkrum mínútum.
Hanna Rún Ragnarsdóttir Það er verið að laga elsku bílinn og heitar vöfflur komnar á járnið og alltaf heitt á könnunni.. Svo erum við svo heppin að hafa 100 manns bæði i service og sem styðja við bakið á okkur að eg trúi ekki öðru en að við komum hress og kát á morgun :))
Hér er enginn uppgjafartónn, motorsport.is óskar þeim góðrar viðgerðar og áframhaldandi rallsksturs í RallýReykjavík 2016.